Hnerraði yfir aðdáendur

Bieber er víst bara mennskur og þarf að hnerra líkt …
Bieber er víst bara mennskur og þarf að hnerra líkt og annað fólk. Ljósmynd / skjáskot Youtube

Justin Bieber tekur sér ekki frí þótt hann kvefist, heldur harkar bara af sér á tónleikum. Það kom sér fremur illa á dögunum þegar kappinn hnerraði duglega þar sem hann var að syngja lagið „What do You Mean“, en finnskir tónleikagestir á fremstu röð fengu yfir sig stærðarinnar slummu.

Að sjálfsögðu var atvikið fest á filmu, en skömmu síðar rataði það svo á netið.

Myndbandið virðist einnig staðfesta þann grun að söngvarin syngi ekki öll lög sín á tónleikum, heldur hreyfi gjarnan varirnar í takt við undirspil. En eins og sjá má tók hann sér pásu frá söngnum, svona rétt á meðan hann var að jafna sig á hnerranum, þó það virðist ekki hafa komið að sök.

Ungstirnið hefur verið töluvert í sviðsljósinu undanfarið, en á dögunum var greint frá því að hann hefði sagt aðdáanda sínum að hann væri glataður, seinna steig þó aðdáandinn fram og lýsti því yfir að stjarnan hefði einungis verið að grínast. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson