Leitar ráða hjá tengdapabba

Brad Pitt er sagður eiga í samskiptum við Jon Voight, …
Brad Pitt er sagður eiga í samskiptum við Jon Voight, sem er faðir Angelinu Jolie. AFP

Leikarinn Brad Pitt er sagður leita ráða hjá tengdaföður sínum, Jon Voight, eftir að Angelina Jolie sótti um skilnað frá honum fyrir nokkrum vikum.

Samkvæmt frétt Daily Mail er Jolie ekki sátt við að faðir hennar skuli vera í samskiptum við Pitt, en samband feðginanna var lengi vel afar stirt. Í raun töluðu þau ekki saman um nokkurra ára skeið eftir að Voight lýsti því yfir í viðtali að leikkonan ætti við andleg veikindi að stríða.

Feðginin sættust síðan árið 2010, eftir átta ára illindi.

Frétt mbl.is: „Ég hef áhyggjur af Angie og börnunum“

Í frétt Daily Mail má lesa að Pitt og Voight hafi verið í góðu sambandi í gegnum tíðina, eða frá því Pitt og Jolie fóru að stinga saman nefjum árið 2005.

„Hún er reglulega pirruð út í pabba sinn. Það tekur verulega á hana að hann skuli eiga í samskiptum við Brad,“ er haft eftir heimildamanni.

„Angelina er í samskiptum við föður sinn, en hún segir honum þó varla neitt þar sem hún treystir honum ekki.“

Áður hefur verið greint frá því að Pitt og Jolie talist ekki við og öll samskipti þeirra fram í gegnum lögmenn beggja aðila.

Frétt mbl.is: Það er allt í strand

Feðginin töluðust ekki við lengi vel.
Feðginin töluðust ekki við lengi vel. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant