Tekur ekki þátt í að kynna nýjustu mynd sína

Brad Pitt hefur látið fara lítið fyrir sér undanfarið.
Brad Pitt hefur látið fara lítið fyrir sér undanfarið. AFP

Brad Pitt ætlar ekki að taka þátt í kynningarstarfi fyrir nýjustu kvikmynd sína, Allied, en hann hefur látið lítið fyrir sér fara síðan Angelina Jolie sótti um skilnað frá honum fyrr í haust.

Leikarinn átti að koma fram í fjölda viðtala og annarra viðburða en hefur nú ákveðið að koma ekki fram opinberlega í aðdraganda frumsýningarinnar.

„Þetta átti að vera upphafið að stórri herferð sem miðaði að því að Brad myndi loksins vinna Óskarsverðlaun fyrir besta leikinn, en hann er viðriðinn svo miklar deilur að hann hættir ekki á að koma fram opinberlega,“ er haft eftir ónefndum heimildarmanni.

„Fjöldi spjallþáttastjóra sem höfðu bókað hann eru miður sín, og búið er að aflýsa fullt af viðtölum við blaðamenn.“

Þá segir í frétt Daily Mail að fjölmiðlafólki hafi verið bannað að spyrja aðra aðstandendur kvikmyndarinnar út í einkalíf leikarans.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson