Brad Pitt mætti á rauða dregilinn

Brad Pitt mætti á frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar í gær.
Brad Pitt mætti á frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar í gær. AFP

Í gærkvöldi var nýjasta kvikmynd Brad Pitt, Allied, frumsýnd og mætti leikarinn á rauða dregilinn. Áður hafði verið greint frá því að leikarinn hygðist ekki taka þátt í kynningarstörfum fyrir kvikmyndina.

Brad Pitt hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið, en hann á harðvítugum forræðisdeilum við barnsmóður sína, Angelinu Jolie.

Þá var leikarinn sakaður um að hafa veist að syni sínum, Maddox, og hefur því mátt sæta rannsókn yfirvalda undanfarið. Rannsókninni er nú lokið, en ekkert fannst sem benti til þess að leikarinn hefði brotið gegn syni sínum.

Frétt mbl.is: Rannsókn á Pitt lokið

Pitt mætti einn síns liðs á frumsýninguna. Hann forðaðist ekki að ræða við aðdáendur sína, heldur gaf eiginhandaráritanir og stillti sér upp á ljósmyndum. Þá stillti hann sér einnig upp fyrir ljósmyndara með mótleikkonu sinni, Marion Cotillard.

Pitt gaf sér tíma til þess að rabba við aðdáendur.
Pitt gaf sér tíma til þess að rabba við aðdáendur. AFP
Aðdáendur leikarans voru himinlifandi.
Aðdáendur leikarans voru himinlifandi. AFP
Leikstjórinn Robert Zemeckis, Marion Cotillard og Brad Pitt stilltu sér …
Leikstjórinn Robert Zemeckis, Marion Cotillard og Brad Pitt stilltu sér upp fyrir ljósmyndara. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant