Jolie fer enn fram á fullt forræði

Angelina Jolie og Brad Pitt höfðu verið gift í tvö …
Angelina Jolie og Brad Pitt höfðu verið gift í tvö ár þegar leikkonan sótti um skilnað. AFP

Leikkonan Angelina Jolie fer enn fram á fullt forræði yfir börnum sínum og Brads Pitts, og er tilbúin að fara með málið fyrir rétt samkvæmt frétt Daily Mail.

Leikarinn hefur undanfarið sætt rannsókn alríkislögreglunnar, sem og félagsþjónustunnar í Los Angeles, en honum var gert að sök að hafa veist að syni sínum. Rannsókn er nú lokið, en ekkert fannst sem benti til þess að Pitt hefði brotið á syninum.

Frétt mbl.is: Rannsókn á Pitt lokið

Talsmaður Jolie sagði í kjölfarið að leikkonan væri fegin að rannsókn yfirvalda væri lokið, og að börn hennar gætu nú farið að græða sárin. Þá segir talsmaðurinn einnig að frá upphafi hafi Jolie talið sig þurfa að bregðast við til þess að standa vörð um heilbrigði fjölskyldunnar.

Ef Jolie og Pitt komast ekki að samkomulag hvað varðar forræði yfir börnunum munu þau þurfa að fara með málið fyrir rétt. Eins og áður sagði vill leikkonan fara með fullt forræði yfir börnunum, en Pitt óskar þess að fá sameiginlegt forræði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson