Fékk ekki að hitta börnin á þakkargjörðarhátíðinni

Brad Pitt hefur undanfarið sinnt kynningarstarfi fyrir nýjustu kvikmynd sína, …
Brad Pitt hefur undanfarið sinnt kynningarstarfi fyrir nýjustu kvikmynd sína, Allied. AFP

Leikarinn Brad Pitt eyddi þakkargjörðarhátíðinni á hitabeltiseyjunni Turks og Caicos, þar sem hann dvaldi í lúxusvillu með vini sínum.

Samkvæmt frétt Mirror gat leikarinn ekki eytt hátíðinni með börnunum sínum, en þau dvöldu hjá móður sinni Angelinu Jolie.

„Hann dvaldi í einkavillu á Amanyara hótelinu á Turks og Caicos yfir þakkargjörðarhátíðina vegna þess að Angie vildi ekki leyfa honum að hitta börnin. Brad eyddi því helginni með vini sínum.“

Jolie sótti um skilnað frá Pitt í september, en leikarinn var sakaður um að hafa veist að syni sínum um borð í einkaþotu þeirra hjóna. Leikarinn sætti í kjölfarið rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar og félagsþjónustunnar í Los Angeles, en hann hefur nú verið hreinsaður af öllum grun.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant