Pitt og Jolie semja um skilnaðinn

Angelina Jolie Pitt og Brad Pitt.
Angelina Jolie Pitt og Brad Pitt. AFP

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa náð samkomulagi um að ganga persónulega frá skilnaðinum og sameinast um að sætta fjölskylduna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá leikurunum sem skildu á borði og sæng í fyrra.

Þar kemur fram að atriði sem koma fram í skilnaðarsamkomulagi þeirra verði þeirra einkamál og að gengið verði frá skilnaðinum sem einkamáli fyrir dómi.  

Samkvæmt frétt Guardian hafa þau bæði skrifað undir samkomulagið sem miðar að því að virða einkarétt þeirra og barnanna. Það er er gert með því að leynd hvíli yfir öllum gögnum málsins. Þau setji börnin í forgang og þeirra hagsmuni. Þetta er í fyrsta skipti sem þau senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu frá því Jolie óskaði eftir skilnaði í september.

Forræði yfir börnunum sex hefur verið helsta málið varðandi skilnaðinn og fer Jolie fram á forræði yfir þeim. Samkvæmt lögum í Kaliforníu er mælt með sameiginlegu forræði. 

Pitt og Jolie voru gift í tvö ár en saman í tólf ár en þau fóru að stinga saman nefjum þegar þau léku aðalhlutverkin í kvikmyndinni  Mr & Mrs Smith.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant