Kourtney og Bieber skemmtu sér saman

Kourtney skellti sér á djammið um helgina.
Kourtney skellti sér á djammið um helgina. Skjáskot / Daily Mail

Fjölmiðlar hafa farið mikinn undanfarið, enda hafa margir velt því fyrir sér hvort elsta Kardashian systirin, Kourtney, sé með barni.

Frétt mbl.is: Var hún að staðfesta orðróminn?

Ef marka má atburði helgarinnar verður að teljast ólíklegt að svo sé, enda skellti raunveruleikastjarnan sér út á lífið með ungstirninu Justin Bieber, en þau voru talin vera að slá sér upp á síðasta ári.

Samkvæmt frétt Daily Mail var barnsfaðir Kardashian, Scott Disick, staddur með Kim Kardashian í Dubai. Hann lét sig þó hverfa á föstudaginn og svaraði ekki í símann.

„Enginn vissi hvar hann var. Hann átti að vera þarna til þess að passa upp á Kim, en enginn gat fundið hann,“ er haft eftir ónafngreindum heimildarmanni.

Þegar Kardashian náði loks í Disick á hann síðan að hafa sagt henni að hún ætti augljóslega erfitt með að treysta honum. Kardashian ákvað því einfaldlega að skella sér út á lífið með Bieber daginn eftir.

Kardashian og Disick slitu sambandi sínu árið 2015 eftir að upp komst um hjúskaparbrot Disicks, þá höfðu þau verið saman í níu ár. Þau voru síðan talin hafa endurvakið sambandið á ný í byrjun desember á síðasta ári.

Frétt mbl.is: Kourtney og Scott aftur í eina sæng

Bieber og Kardashian er vel til vina.
Bieber og Kardashian er vel til vina. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant