Saup hveljur á sundfötum

Vatnið var líklegra kaldara en stjarnan gerði ráð fyrir.
Vatnið var líklegra kaldara en stjarnan gerði ráð fyrir. Skjáskot / Daily Mail

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er nýkomin heim úr fríi, en hún og fjölskyldan skelltu sér til Costa Rica á dögunum eins og lesa má í frétt Daily Mail.

Stjarnan lét gott tækifæri sér að sjálfsögðu ekki úr greipum renna og stillti sér upp í litlum fossi. Aðstoðarkona hennar stóð svo á hliðarlínunni, með myndavélina á lofti, í von um að ná afbragðsljósmynd af stjörnunni.

Eitthvað virðist vatnið hafa verið kaldara en Kardashian gerði ráð fyrir, því hún saup hveljur þar sem hún stillti sér upp undir bununni.

Kardashian er hægt og rólega að taka upp fyrri hætti, en hún hafði látið lítið fyrir sér fara síðan hún var rænd á síðasta ári.

Aðstoðarkona Kardashian beið á kantinum með handklæði.
Aðstoðarkona Kardashian beið á kantinum með handklæði. Skjáskot / Daily Mail
Aðstoðarkonan var að sjálfsögðu vopnuð myndavél, enda ber raunveruleikastjörnum að …
Aðstoðarkonan var að sjálfsögðu vopnuð myndavél, enda ber raunveruleikastjörnum að skrásetja atvik sem þessi. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant