Íhugar skurðaðgerð á legi

Stjarnan vill bæta við barni.
Stjarnan vill bæta við barni. AFP

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian segist vera að íhuga að fara í skurðaðgerð til að lagfæra leg sitt, en hún þjáðist af ýmsum kvillum þegar hún gekk með börn sín tvö.

Raunveruleikastjarnan hefur verið ófeimin að ræða meðgöngurnar og fæðingarnar, sem gengu brösuglega fyrir sig. Á síðustu meðgöngu þjáðist hún meðal annars af meðgöngusykursýki, auk þess sem fylgjan greri föst við legið og skilaði sér ekki út að fæðingu lokinni. Læknir hennar þurfti því að fjarlægja hana með handafli, sem stjarnan segir að hafi verið ákaflega sársaukafullt.

Kardashian hafði áður gefið út að hún ætlaði sér ekki að ganga með fleiri börn, auk þess sem hún sagðist vera að velta staðgöngumæðrun fyrir sér.

Frétt mbl.is: Sögð íhuga staðgöngumæðrun

Nú virðist þó annað hljóð vera komið í strokkinn, en stjarnan greindi frá því í raunveruleikaþætti sínum að hún væri að íhuga að gangast undir skurðaðgerð á legi.

„Ég verð að fara í skurðaðgerð til að lagfæra legið í mér. Það þarf að fjarlægja örvef sem hefur myndast þar,“ sagði stjarnan.

„Meðgangan yrði samt áhættusöm, en ég gæti þó orðið þunguð. Ég vil að börnin mín eignist systkini og ég vil vita að ég hafi gert allt sem í mínu valdi stendur til að láta það gerast.“

Kardashian á tvö börn, North og Saint West.
Kardashian á tvö börn, North og Saint West. Skjáskot / Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson