Sigurður hlaut Maístjörnuna

Sigurður Pálsson hlýtur Maístjörnuna í ár.
Sigurður Pálsson hlýtur Maístjörnuna í ár. mbl.is/Kristinn

Rithöfundurinn Sigurður Pálsson hlaut Maístjörnuna fyrir ljóðabók sína Ljóð muna rödd. Það voru Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn sem veittu verðlaunin í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni.

Verðlaunin eru veitt fyrir ljóðabók sem kom út á árinu 2016 en dagur ljóðsins er í dag.

Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir í tilkynningu:

„„Hér af spássíu Evrópu“ heitir eitt ljóð í bókinni Ljóð muna rödd, bók sem er rík af röddum, ljósi, skuggum, nálægð og fjarlægð. Spássían getur á óvæntan hátt verið auðugt svæði og það lýsir vel skáldinu sem svo yrkir. Í þessari bók birtist auðugur ljóðheimur Sigurðar Pálssonar, skálds sem hefur sannarlega lagt sitt fram til endurnýjunar og krafts íslensks ljóðmáls. Ljóð muna rödd er sterk bók þar sem glímt er við stórar spurningar. Röddin í titlinum er áleitin, ljóðin eru myndræn, tregafull og magnþrungin, en eru jafnframt óður til lífsins og lífsgleðinnar.“

Sigurður Pálsson er að vonum ánægður með verðlaunin. „Þessi verðlaun hafa mikla þýðingu af því að það er afar mikilvægt að fá viðbrögð við því sem maður er að gera. Þetta eru frábær verðlaun og löngu tímabært að stofna ljóðlistarverðlaun. Hvað á eiginlega að verðlauna ef ekki ljóð? Ég hygg að kannski sé mikilvægast að fá svona verðlaun í upphafi ferils og einnig undir lokin,“ segir Sigurður Pálsson.

Tilnefndar voru bækurnar:

Ég sef ekki í draumheldum náttfötum eftir Eyþór Árnason sem  Veröld gaf út.

Veröld hlý og góð eftir Magnús Sigurðsson sem Dimma gaf út.

Ljóð muna rödd eftir Sigurð Pálsson í útgáfu JPV.

Tungusól og nokkrir dagar í maí eftir Sigurlín Bjarney Gísladóttur í útgáfu Máls og menningar.

Óvissustig eftir Þórdísi Gísladóttur sem Benedikt gaf út.

Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2016 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í dómnefnd sátu Ármann Jakobsson, tilnefndur af Rithöfundasambandinu, og Áslaug Agnarsdóttir, tilnefnd af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.

Sigurður Pálsson.
Sigurður Pálsson. mbl.is/Kristinn

Sigurður Pálsson er fæddur 30. júlí 1948 á Skinnastað í Norður-Þingeyjarsýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam leikhúsfræði og bókmenntir í Sorbonne og lauk þaðan maîtrise-gráðu og D.E.A. (fyrri hluti doktorsgráðu). Sigurður kenndi við Leiklistarskóla Íslands 1975–1978 en hefur síðustu ár sinnt kennslu við ritlistardeild Háskóla Íslands. Fyrsta ljóðabók Sigurðar Ljóð vega salt kom út 1975 en alls hefur hann sent frá sér 16 ljóðabækur, að því er kemur fram í tilkynningunni. 

Sigurður er afkastamikill rithöfundur á öðrum sviðum. Fyrir fyrstu bókina í endurminningaþríleik sínum, Minnisbók (2007), hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin. Sigurður er einnig eitt vinsælasta leikskáld þjóðarinnar en hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir handrit sitt að Utan gátta (2008). Árið 2007 sæmdi Frakklandsforseti Sigurð riddarakrossi Frönsku heiðursorðunnar (Chevalier de l’Ordre National du Mérite). Sigurður hefur auk þess verið mikilvirkur þýðandi og má þar nefna ljóð eftir Paul Éluard og Jacques Prévert og skáldsögu franska Nóbelsverðlaunahafans Patricks Modiano. Á síðasta ári komu út þýðingar Sigurðar á Ummyndanir og fleiri ljóð eftir Willem M. Roggeman og Uppljómanir & árstíð í helvíti eftir Arthur Rimbaud sem hann þýddi ásamt Sölva Birni Sigurðssyni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler