Kvikmynd um Geirfinnsmálið í fullri lengd

Kvikmyndin mun fjalla um Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Þau Sævar, Erla, …
Kvikmyndin mun fjalla um Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Þau Sævar, Erla, Kristján, Tryggvi, Albert og Guðjón voru sakborningar í málinu.

Tökur á leikinni kvikmynd í fullri lengd um Guðmundar- og Geirfinnsmálin hefjast á næsta ári, en á bak við myndina standa leikstjórinn Egill Örn Egilsson (Eagle Egilsson), framleiðendurnir Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp og tónlistarmaðurinn Damon Albarn sem mun semja tónlist fyrir myndina. Myndin hefur fengið heitið Imagine murder eða Lifun á íslensku.

Þá mun Sverrir Guðnason leika aðalhlutverk myndarinnar, en hann hefur undanfarið skotist upp á stjörnuhimininn í Svíþjóð og mun fljótlega koma út kvikmynd um ævi tennisstjörnunnar Björn Borg, þar sem Sverrir leikur aðalhlutverkið.

Sverrir Guðnason mun leika aðalhlutverkið í nýju myndinni.
Sverrir Guðnason mun leika aðalhlutverkið í nýju myndinni. mbl.is/Friðrik Tryggvason

Albarn og Ingvar hafa áður unnið saman við gerð myndarinnar 101 Reykjavík þar sem Albarn samdi tónlist.

Í samtali við mbl.is segir Ingvar að handritið að myndinni hafi verið klárt í tvö ár og verkefnið í heild hafi verið fjögur ár í undirbúningi. Áætlað er að myndin verði frumsýnd árið 2019, en nú þegar er búið að selja sýningarrétt að henni í Þýskalandi og Skandínavíu.

Damon Albarn mun semja tónlist fyrir kvikmyndina, en hann var …
Damon Albarn mun semja tónlist fyrir kvikmyndina, en hann var einnig í samstarfi við framleiðanda hennar við gerð 101 Reykjavík á sínum tíma. Eggert Jóhannesson

Segir Ingvar að fjármögnun sé komin lang leiðina og að ef ákveðið hefði verið að hafa hana á ensku væri það mál frágengið. Framleiðendurnir telji myndina hins vegar hluta af íslenskri sögu og því nauðsynlegt að hafa hana á íslensku. Segir hann að það að hafa Egil sem leikstjóra og Sverri í aðalhlutverkinu hafi hjálpað mikið til við að laða að fjárfesta, en Egill hefur meðal annars þó nokkrum stórþáttum í Bandaríkjunum, eins og CSI Cyber, CSI Miami, Gotham, The Black list og nú síðast Training day þætti.

Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp eru framleiðendur myndarinnar.
Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp eru framleiðendur myndarinnar. Kristinn Ingvarsson

Fyrr í þessum mánuði var heimildarmyndin Out of thin air, sem einnig fjallar um sama mál, frumsýnd. Það var Sagafilm sem framleiddi þá mynd. Þá hefur verið tilkynnt um framleiðslu á þáttum um Guðmundar- og Geirfinnsmálið sem RVK Studios ætla að framleiða. Munu þeir nefnast The Reykjavík confessions.

Egill Örn Egilsson kvikmyndagerðarmaður
Egill Örn Egilsson kvikmyndagerðarmaður
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant