Starfsfólk Depp vissi um heimilisofbeldið

Leikarinn Johnny Depp og fyrrverandi unnusta hans leikkonan Amber Heard.
Leikarinn Johnny Depp og fyrrverandi unnusta hans leikkonan Amber Heard. mbl.is/AFP

Umboðsmenn Johnny Depp vissu að hann gengi í skrokk á fyrrverandi eiginkonu sinni, Amber Heard, samkvæmt nýjum dómsgögnum. 

Í gögnunum kemur fram að starfsmönnum leikarans þætti hann vera mjög skapvondur og hefðu séð hann nokkrum sinnum leggja hendur á Heard. Einnig lýsa þeir atviki þar sem Depp sparkaði harkalega í leikkonuna árið 2014.

Upplýsingarnar koma fram í gögnum frá fyrrverandi umboðsfyrirtæki leikarans, TMG, en Depp er að höfða mál gegn því fyrir að fara illa með peninga hans. TMG hefur barist á móti ásökununum og segir að leikarinn beri sjálfur ábyrgð á slæmum fjárhag. 

Skilnaður Depp og Heard í fyrra var fjandsamlegur og það var þá sem Depp var ásakaður um heimilisofbeldi fyrst þegar Heard birti sms-skilaboð á milli hennar og aðstoðarkonu Depp þar sem aðstoðarkona leikarans biður Heard afsökunar á sláandi hegðun hans. 

Depp hefur sífellt neitað öllum sökum.




Samkvæmt umboðsmönnum leikarans gekk hann oft í skrokk á fyrrverandi …
Samkvæmt umboðsmönnum leikarans gekk hann oft í skrokk á fyrrverandi konu sinni AFP
Johnny Depp sem Jack Sparrow.
Johnny Depp sem Jack Sparrow. mbl/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson