Beyoncé birtir mynd af tvíburunum

Beyoncé birti mynd af sér með tvíburana.
Beyoncé birti mynd af sér með tvíburana. Skjáskot

Bandaríska söngkonan Beyoncé Knowles hefur birt fyrstu myndina af tvíburum sínum og rapparans Jay-Z, í tilefni þess að mánuður er liðinn frá fæðingu þeirra. Deildi hún myndinni á Instagram-síðu sinni fyrir þremur klukkustundum, en þegar hafa þrjár milljónir líkað við myndina.

BBC greinir frá þessu.

Á myndinni má sjá Beyoncé sjálfa með tvíburana í fanginu, umvafða blómum. Undir hana skrifaði hún: „Sir Carter og Rumi eins mánaðar í dag.“

Þar með staðfesti söngkonan sögusagnir um nöfnin, sem fóru á kreik eftir að hjónin sóttu um höfundarrétt á nöfnunum tveimur. Tryggðu þau þannig að enginn annar gæti hagnast á nöfnunum.

Fyrir eiga hjónin dótturina Blue Ivy, sem er fimm ára.

Beyonce til­kynnti óléttu sína á In­sta­gram í fe­brú­ar, sem varð strax líkaðasta mynd á sam­fé­lags­miðlin­um.

Sir Carter and Rumi 1 month today. 🙏🏽❤️👨🏽👩🏽👧🏽👶🏾👶🏾

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Jul 13, 2017 at 10:10pm PDT

Beyoncé eignaðist tvíbura um miðjan júní.
Beyoncé eignaðist tvíbura um miðjan júní. mbl
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson