Breski sjónvarpsþáttastjórnandinn Jeremy Clarkson var lagður inn á sjúkrahús á Mallorca á Spáni í gær vegna lungnabólgu.
Clarkson er í fríi með fjölskyldu sinni, en veiktist skyndilega. Hann birti mynd á Instagram-síðu sinni í gær af hendinni á sér. „Ekki armbönd sem ég er vanur að nota í fríi,“ skrifaði hann. Þá sagði hann frá því á Twitter að hann væri „í hjólastól, tengdur leiðslum, á spítala.“
Not the sort of bangles I usually choose on holiday
A post shared by Jeremy Clarkson (@jeremyclarkson1) on Aug 5, 2017 at 6:20am PDT
Tveir mánuðir eru síðan Richard Hammond, sem stjórnar þættinum Grand Tour ásamt Clarkson, var fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt bílslys. Hammond fótbrotnaði í slysinu, en bíllinn gjöreyðilagðist.