„Hann lyfti pilsinu og greip um rassinn“

Taylor Swift.
Taylor Swift. AFP

Taylor Swift hefur verið mikið hrósað fyrir vitnisburð sinn í máli hennar á móti David Mueller þar sem að hún sakar hann um að hafa káfað á sér.  

Swift ásakaði Mueller um að hafa farið með hend­ur sín­ar und­ir kjól hennar og gripið í rasskinn henn­ar þegar þau stilltu sér upp fyr­ir mynd sam­an baksviðs á tón­leik­um henn­ar árið 2013. Mueller missti vinnu sína sem plötusnúður og útvarpsmaður tveim dögum seinna og kærði þá söngkonuna fyrir ærumeiðingar. Swift kærði hann svo til bara fyrir kynferðislega áreitni.

Mynd frá atvikinu.
Mynd frá atvikinu. Skjáskot/TMZ

Í gær bar söngkonan vitni og sagði frá atburðinum, sem að Mueller neitar harðlega. Frásögn söngkonunnar hefur verið hrósað mikið fyrir að vera kröftug, djörf og málefnaleg þar sem að hún sat ein fyrir framan hóp eldri karlmanna sem reyndu að afsanna mál hennar.

Þegar lögfræðingur Mueller spurði hana hvort að hún væri ósátt út í lífvörð sinn svaraði hún hvöss „ég er ósátt yfir því að kúnni þinn troði hendi sinni undir pilsið mitt og grípi í rassinn minn.“

Hún bar vitni yfir því að allt öryggisteymi hennar hafi séð Mueller lyfta pilsi hennar en aðeins manneskja sem lægi á gólfinu hefði séð allt sem gerðist „og við höfðum enga manneskju staðsetta á gólfinu,“ sagði hún.

„Ég ætla ekki að leyfa kúnna þínum að segja að þetta sé mér að kenna,“ sagði Swift þegar lögfræðingur Mueller spurði hana hvort hún væri ekki að ruglast á mönnum. 

Þegar Swift var spurð af hverju pilsið hennar sé ekki krumpað að framan á myndinni sem var tekin frá atvikinu sagði hún „því að rassinn minn er staðsettur aftan á líkama mínum.“

„Ég staðri á gólfið, ég gat ekki horfst í augu …
„Ég staðri á gólfið, ég gat ekki horfst í augu við hvorugt þeirra.“ Skjáskot/Twitter

„Þetta gerðist fyrir mig, ég veit nákvæmlega hvað gerðist,“ sagði Swift. „Ég myndi þekkja þennan mann úr hópi 1.000 karlmanna. Ég veit nákvæmlega hver gerði þetta. Þetta er ekkert meint áreitni. Þetta er staðreynd.“

„Þú getur spurt mig milljón spurninga og ég mun ekki svara þér neitt öðruvísi,“ bætti Swift við. 

Þegar lögfræðingur Mueller sagði söngkonunni að hún hafi alveg getað hætt við að hitta aðdáendur sagði Swift „og kúnninn þinn hafði alveg getað tekið venjulega mynd með mér.“

Fjölmiðlar og aðdáendur söngkonunnar hafa hrósað henni fyrir að vera frábær fyrirmynd fyrir ungar konur sem að hafa lent í svipuðum aðstæðum þar sem að hún stendur sterk á máli sínu og ásakar eldri karlmann um að brjóta á sér þó svo að margir karlar reyni að telja henni trú um annað. 

„Hann hélt á handfylli af rass mínum. Þetta gerðist fyrir …
„Hann hélt á handfylli af rass mínum. Þetta gerðist fyrir mig, ég veit að þetta var hann“ Skjáskot/twitter
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler