Mikið hefur mætt á Rooney-hjónunum undanfarið en fótboltakappinn var á dögunum gripinn við ölvunarakstur. Með honum í för var ung kona sem síðar greindi frá því að stjarnan hefði gert sér dælt við hana.
Á meðan þessu öllu stóð var þunguð eiginkona Rooneys, Coleen, stödd á Mallorca með þrjá unga syni þeirra. Wayne missti í kjölfar handtökunnar ökuréttindi sín, auk þess sem hann þurfti að greiða himinháa sekt og var dæmdur til þess að sinna samfélagsþjónustu.
Framferði Waynes virðist hafa verið dropinn sem fyllti mælinn, en Coleen virðist vera búin að fá sig fullsadda á eiginmanninum. Þá hefur hún undanfarið ítrekað sést án giftingarhringsins, þrátt fyrir að Wayne reyni allt sem í hans valdi stendur til að vinna hylli eiginkonu sinnar á ný.
Frétt mbl.is: Keypti 638 milljón króna lúxusvillu fyrir spúsuna
Eins og fram kemur í frétt Daily Mail var Coleen mynduð án hringsins í gær, eina ferðina enn.
Frétt mbl.is: Búið spil hjá Rooney-hjónunum?