Glee-stjarna ákærð fyrir heimilisofbeldi

Leikkonan Naya Rivera og Ryan Dorsey .
Leikkonan Naya Rivera og Ryan Dorsey . AFP

Bandaríska leikkonan Naya Rivera hefur verið ákærð fyrir heimilisofbeldi en hún var handtekin á heimili sínu. Rivera er þekktust fyrir leik sinn í söngleikjaþáttunum Glee.

Lögregluþjónar ræddu við eiginmann Rivera, Ryan Dorsey, en hann sagði þeim að Rivera hefði slegið hann þar sem þau voru á gangi með syni þeirra.

Samkvæmt erlendum fjölmiðlum sýndi Dorsey lögregluþjónunum myndskeið úr farsíma sem á að sýna þegar hann er laminn í höfuðið og vörina.

Rivera var færð fyrir dómara vegna málsins en neitaði að tjá sig um málið við blaðamenn á staðnum.

Rivera og Dorsey eiga tveggja ára gamlan son en þau gengu í hjónaband fyrir þremur árum síðan. Fregnir bárust af því að þau væru að hætta saman í fyrra en þau ákváðu nýlega að halda sambandinu áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant