Gomez og Bieber í ástarbríma

Justin Bieber og Selena Gomez voru lengi vel par, en …
Justin Bieber og Selena Gomez voru lengi vel par, en þau eru sögð hafa endurvakið samband sitt. Af Instagram

Ungstirnin og tónlistarfólkið Justin Bieber og Selena Gomez virðast hafa endurvakið samband sitt, en undanfarnar vikur hafa þau oftsinnis sést saman, til að mynda sáust þau í innilegum faðmlögum á dögunum.

Gomez tjáði sig síðan um sinn gamla, og að því er virðist nýja, elskhuga á viðtali við Billboard í gær. Söngkonan var spurð hvað það hefði verið sem varð til þess að Bieber dúkkaði aftur upp í lífi hennar, en söngkonan svaraði því til að hún kynni vel að meta fólk sem hefði haft mikil áhrif á líf hennar.

„Ég er 25 ára. Ég er ekki 18, 19 eða 20 ára. Mér þykir vænt um fólk sem hefur haft mikil áhrif á líf mitt. Hér áður fyrr var ég hugsanlega að neyða mig til að gera eitthvað sem var ekki rétt, en það þýðir ekki að umhyggjan fyrir viðkomandi hverfi nokkurn tímann.“

Skötuhjúin, Gomez og Bieber, sáust svo í innilegum faðmlögum í vikunni, en samkvæmt frétt Daily Mail virtust þau ekki geta slitið augun af hvort öðru.

Skötuhjúin virðast hæstánægð með hvort annað.
Skötuhjúin virðast hæstánægð með hvort annað. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson