Níu bækur tilnefndar

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, voru kynntar í Borgarbókasafninu í Tryggvagötu nú á sjötta tímanum. Alls eru níu bækur tilnefndar til verðlaunanna, þrjár í hverjum flokki, en flokkarnir skiptast í barna- og unglingabókmenntir, fagurbókmenntir og fræðibækur og rit almenns eðlis. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Höfða 15. janúar 2018.

Kristín Eiríksdóttir
Kristín Eiríksdóttir mbl.is/Golli

Í flokki barna- og unglingabókmennta eru tilnefndar Lang-elstur í bekknum eftir Bergrúnu Íris Sævarsdóttur; Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir eftir Brynhildi Þórarinsdóttur og Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur.

Dómnefnd skipuðu: Arnþrúður Einarsdóttir kennari, Sigrún Birna Björnsdóttir og framhaldsskólakennari Þorbjörg Karlsdóttir bókasafnsfræðingur. 

Í flokki fagurbókmennta eru tilnefndar Flórída eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur; Slitförin eftir Fríðu Ísberg og Elín, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur.

Dómnefnd skipuðu: Bergþóra Skarphéðinsdóttir íslenskufræðingur, Guðrún Lára Pétursdóttir ritstjóri og Salka Guðmundsdóttir leikskáld og þýðandi.

Bergrún Íris Sævarsdóttir
Bergrún Íris Sævarsdóttir mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru tilnefndar Íslenska lopapeysan: Uppruni, saga og hönnun eftir Ásdísi Jóelsdóttur; Leitin að klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í fimm aldir eftir Steinunni Kristjánsdóttur og Undur Mývatns: Um fugla, flugur, fiska og fólk eftir Unni Jökulsdóttur.

Dómnefnd skipuðu: Helga Haraldsdóttir sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Sigurrós Erlingsdóttir íslenskukennari og Þórunn Blöndal dósent í íslenskri málfræði. 

Í umsögn dómnefndar um barna- og unglingabækurnar segir að allar eigi tilnefndur bækurnar það sameiginlegt að „vera skrifaðar á blæbrigðaríku og fallegu máli en um leið fá þær lesendur til að efla málvitund og auka lesskilning sinn. Fjölbreytni þeirra gefur fögur fyrirheit um aukið úrval lesefnis fyrir aldurshópinn sem tilheyrir barna- og ungmennabókum.“

Um Lang-elstur í bekknum segir: „Sagan kennir okkur að samvinna og það að þora aðeins út fyrir þægindarammann skiptir oft máli til að auka lífsgæði okkar. Frásögnin af skólasystkinunum er einkar skemmtileg og fyndin og ekki skemma myndir höfundarins fyrir sem glæða söguna lífi. Bókin er léttlestrarbók með þægilegu letri, stuttum köflum og hentar byrjendum og öllum þeim sem þurfa að æfa sig í lestri.“

Um Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir segir: „Frásögnin er lipur, myndræn og vel byggð, persónusköpun er lifandi og eru börnin dregin skýrum dráttum þar sem sumarfríið reynist þeim þroskandi og er lesandi ekki frá því að tognað hafi ærlega úr þeim eftir ævintýrin. Börnin tvö eru aðalpersónurnar og kastljósinu beint að þeirra hugðarefnum.

Um Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels segir: „Sagan er þroskasaga þar sem Ishmael upplifir æðimargt á skömmum tíma en hann lærir líka að þekkja tilfinningar sínar og treysta innsæinu. Persónur eru raunsæjar þannig að auðvelt er fyrir lesanda að finna til samhygðar. Uppbygging bókarinnar er einstök þar sem hver kafli er afmarkaður af ljósmynd og klausu úr Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tengist umfjöllunarefninu og er óhætt að segja að það hafi talsverð áhrif á upplifun lesandans.“

Í umsögn dómnefndar um Elín, ýmislegt segir að höfundir flétti „saman sögu tveggja kvenna sem eru dregnar sterkum og trúverðugum dráttum. […] Á einkar næman og áhrifaríkan hátt er hér fjallað um skynjun manneskjunnar á veruleikanum, um flóttaleiðir hugans, einsemd, hið gleymda og falda. Frásagnartæknin er í senn úthugsuð og áreynslulaus […] Í takt við leiðarstef bókarinnar skapar höfundur myndir sem höfða til allra skynfæra og nýtir meðal annars sterk tákn sem þó eru aldrei augljós eða yfirborðskennd frekar en bókin sjálf.“

Um Flórída segir: „Rétt eins og hinar kenjóttu persónur bókarinnar er Flórída verk sem víkur sér undan einföldum skilgreiningum. Í knöppum prósa höfundar er engu ofaukið. […] Höfundur skapar gróteska og nánast yfirþyrmandi veröld þar sem öll lögmál smám saman skekkjast, sífellt þrengir að og hnignun aðalpersónunnar verður óhjákvæmileg. […] Hér koma saman vel valið form, magnað innihald og firnasterk stílbrögð og útkoman er ákaflega gott skáldverk.“


Um Slitförin segir að um sé að ræða afar vandaða „ljóðabók þar sem í tæplega fjörutíu ljóðum eru dregnar upp fjölmargar litlar myndir af augnablikum úr tilverunni, mannlegum samskiptum, brestum og tilfinningalegu ástandi. Skáldið segir þó um leið mun stærri sögu af samböndum og arfleifð kynslóðanna, vítahringjunum sem verða til upp úr erfiðu fjölskyldumynstri og hinni vandrötuðu leið sem unglingsstúlka þarf að feta til að öðlast sjálfstæða vitund ungrar konu.“
Skemmtilega skrifað

Í umsögn um Íslenska lopapeysan: Uppruni, saga og hönnun segir að bókin sé „falleg og hlý“ auk þess að geyma „feikimikinn fróðleik um prjón og lopapeysur. Í bókinni rannsakar Ásdís sögu og þróun íslensku lopapeysunnar og rannsóknin leiðir í ljós athyglisverð tengsl samfélagsbreytinga og iðnþróunar. […] Í bókinni rekur Ásdís hvernig ullarvinnsla öðlast vinsældir á ný á 20. öld með lopapeysunni og hvernig hönnuðir, og aðrir skapandi einstaklingar, nýta þennan efnivið.“

Um Undur Mývatns: Um fugla, flugur, fiska og fólk segir að Unnur lýsi „samlífi ólíkra lífvera á einkar næmlegan hátt og fléttar saman fræðilegar staðreyndir, munnmælasögur og örsögur úr eigin lífi í þessari stórbrotnu náttúru. […] Niðurstaðan verður læsileg bók, skrifuð af ástríðu og hrifningu, þar sem rétt er farið með staðreyndir en þannig um þær búið að allir geta haft af þeim gagn og gaman.“


Um Leitin að klaustrunum. Klausturhald á Íslandi í fimm aldir segir að þetta sé: „voldugt rit og skemmtilega skrifað. Lesandinn fær ekki einungis góða innsýn í klausturhald á Íslandi í kaþólskum sið heldur einnig í vinnubrögð fornleifafræðinga og annarra sérfræðinga. […] höfundur bregður upp áhugaverðum myndum úr vinnunni við uppgröftinn, bæði í orðum og ljósmyndum sem sumar segja meira en mörg orð.“

Unnur Jökulsdóttir
Unnur Jökulsdóttir mbl.is/Ásdís
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler