Góði úlfurinn, Úlfur Emilio Machado Tinnuson sem er 10 ára, er búinn að gefa út nýtt lag. Lagði heitir Hvenær kemur frí? og var að detta inn á Youtube.com.
HÉR er hægt að hlusta á lagið.
Rapparinn ungi stundar nám við Austurbæjarskóla og er eitursvalur. Hann er klæðist leðurjakka, er með derhúfu og gullkeðju í nýjasta myndbandinu. Í október kom fyrsti rappsmellur Góða úlfsins út, Græða peninginn, sem vakti mikla athygli.