Fær milljarð við skilnað við Weinstein

Harvey Weinstein og Georgina Chapman hafa verið gift í tíu …
Harvey Weinstein og Georgina Chapman hafa verið gift í tíu ár og eiga tvö börn saman. mbl.is/AFP

Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein og eiginkona hans Georgina Chapman áttu tíu ára brúðkaupsafmæli í síðustu viku. Því var ekki fagnað eins og venja er enda Chapman búin að ráða til sín skilnaðarlögfræðing. 

Chapman tilkynnti í haust að hún hefði farið frá Weinstein eftir að upp komst um kynferðislegt ofbeldi hans. Chapman á von á hárri summu við skilnað við Weinstein en TMZ komst í kaupmála hjónanna. 

Ef þau skilja núna fær Chapman 11,75 milljónir dollara eða rúmlega 1,2 milljarða íslenskra króna samkvæmt útreikningum TMZ. Ef hún hættir við að skilja eða bíður með að skilja hækkar upphæðin hins vegar. 

„Ég finn til með öll­um þess­um kon­um sem hafa tek­ist á við mikl­ar kval­ir vegna þess­ara gjörða hans, sem ekki er hægt að fyr­ir­gefa,“ seg­ir Chapman í viðtali við tíma­ritið People þegar hún sagðist hafa farið frá Weinstein. 

Harvey Weinstein og Georgina Chapman.
Harvey Weinstein og Georgina Chapman. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant