Leikarinn T.J. Miller sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum Silicon Valley neitar ásökunum um að hafa beitt konu kynferðislegt obeldi árið 2001. Miller og eiginkona hans Kate Goreny hafa gefið frá sér yfirlýsingu þar sem þau neita ásökunum.
Í yfirlýsingu hjónanna segjast þau hafa kynnst þessari konu fyrir meira en áratug í háskóla og þar hafi þessi ónefnda kona reynt að stía þeim í sundur í meira en ár áður en hún kom fram með ásakanir. Þau segja jafnframt að hún hafi viljað mála Goreny sem fórnarlamb Millers.
Í The Daily Beast segir konan að hún hafi átt í sambandi við Miller og að hann hafi beitt hana ofbeldi í kynlífi. Fyrrverandi kærasti konunnar staðfesti söguna, hann segist hafa trúað henni fyrir tíu árum og trúi henni enn í dag. Kona sem bjó með ónefndu konunni á þessum tíma man eftir atviki þar sem hún heyrði í ofbeldi í herbergi konunnar og Miller var þar inni með henni.
A post shared by T.J. Miller (@teenagemillionaire) on Dec 19, 2017 at 8:40am PST