Eltihrellir Perry handtekinn

Katy Perry er á tónleikaferðalagi.
Katy Perry er á tónleikaferðalagi. mbl.is/AFP

Hinn 37 ára gamli Pawel Jurski var handtekinn í Miami og ákærður fyrir að sitja um Katy Perry. Jurski kom fyrir rétt í vikunni meðal annars fyrir það að sitja um söngkonuna sem er á tónleikaferðalagi. 

E! greinir frá því að maðurinn hafi reynt að komast baksviðs á tónleikum Perry á miðvikudaginn. Samkvæmt lögreglu reyndi maðurinn að komast að sviðinu þar sem Perry söng. 

„Ég geri hvað sem er til þess að vera með Katy Perry,“ mun maðurinn hafa sagt við lögregluna. Atvikið í vikunni er víst ekki eina skiptið sem Jurski hefur reynt að komast nálægt Perry en hann reyndi að ná sambandi við hana á tvennum tónleikum hennar í Kanada. Jurski fór einnig á tónleika hennar á fimm öðrum stöðum á síðustu tuttugu dögum. 

Katy Perry.
Katy Perry. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson