Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian ætlar ekki að láta ræna sig aftur og því verða skartgripir fjölskyldu hennar ekki geymdir í nýja húsinu. Kardashian og eiginmaður hennar Kanye West fluttu nýverið í nýtt hús en það tók þau nokkur ár að gera það upp.
TMZ greinir frá þessari húsreglu í nýja húsinu en þrátt fyrir að skargripirnir verði ekki geymdir þar munu vopnaðir öryggisverðir standa vörð við húsið allan sólahringinn. Skartgripirnir sem eru milljarða virði eru sagðir geymdir á öðrum stað en þó undir stöðugu eftirliti líkt og nýja húsið.
Raunveruleikastjarnan var lengi að jafna sig eftir að vopnaðir menn brutust inn á hótelherbergi hennar í París haustið 2016. Var Kardashian á hótelherberginu þegar grímuklæddir menn rændu skartgripum hennar.