Spariklædd fyrsta leikskóladaginn

Karlotta prinsessa er byrjuð í leikskóla.
Karlotta prinsessa er byrjuð í leikskóla. AFP/Kensington Palace/Duchess of Cambridge

Karlotta prinsessa hóf leikskólagöngu sína í gær, mánudag. Karlotta virtist vera nokkuð spennt fyrir fyrsta deginum þegar móðir hennar smellti af henni myndum í Kensingtonhöll áður en lagt var af stað. 

Karlotta, sem verður þriggja ára í maí, fékk vistun í Willcocks Nur­sery School en eins og mbl.is hefur áður greint frá er leikskólinn mun dýrari en venjulegur leikskóli á Íslandi. 

Karlotta var nánast spariklædd þegar Katrín tók myndina en hertogaynjan er lunkinn ljósmyndari og tekur iðulega myndir af börnum sínum sem fara síðan í birtingu.

Karlotta prinsessa.
Karlotta prinsessa. AFP/Kensington Palace/Duchess of Cambridge
Katrín hertogaynja er dugleg að taka myndir af börnum sínum.
Katrín hertogaynja er dugleg að taka myndir af börnum sínum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson