Kvikmynd um Harry og Meghan í vinnslu

Harry & Meghan: The Royal Love Story er í vinnslu.
Harry & Meghan: The Royal Love Story er í vinnslu. mbl.is/AFP

Kvikmynd byggð á ástarsambandi Harry Bretaprins og Meghan Markle er í burðarliðnum hjá Lifetime. Þetta er ekki fyrsti konunglegi rómansinn sem Lifetime framleiðir. 

Áætlað er að kvikmyndin Harry & Meghan: The Royal Love Story muni koma út í ár en þegar hefur verið ráðinn leikstjóri til þess að leikstýra myndinni. 

Lifetime gerði einnig mynd byggða á sambandi Vilhjálms Bretaprins og Katrínar hertogaynju, William & Kate: The Movie, en sú mynd kom út nokkrum dögum eftir að hertogahjónin giftu sig árið 2011. 

Harry og Meghan munu gifta sig í maí en þá hafa þau einungis verið saman í tæp tvö ár. Hins vegar höfðu þau Vilhjálmur og Katrín verið saman í átta ár þegar þau giftu sig og því töluvert meira efni til að byggja heila kvikmynd á. 

Samband Katrínar og Vilhjálms var efni myndarinnar William & Kate: …
Samband Katrínar og Vilhjálms var efni myndarinnar William & Kate: The Movie. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant