Eignuðust börn með hjálp staðgöngumæðra

Fjölmargar stjörnur hafa nýtt sér hjálp staðgöngumæðra.
Fjölmargar stjörnur hafa nýtt sér hjálp staðgöngumæðra. Samsett mynd

Kim Kardashian og Kanye West eignuðust dóttur með hjálp staðgöngumóður í vikunni. Stjörnuhjónin eru langt frá því einu stjörnurnar sem hafa nýtt sér þennan möguleika eins og fram kemur á People. Kardashian var ráðlagt að ganga ekki með fleiri börn sjálf en ýmsar ástæður eru fyrir þessari ákvörðun hjá stjörnunum. 

Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick

Leikarahjónin eignuðust tvíbura árið 2009 með hjálp staðgöngumóður en fyrir áttu þau einn son. Eftir að hafa reynt að eignast annað barn fengu þau hjálp frá staðgöngumóður. 

Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick.
Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick. AFP

David Burtka og Neil Patrick Harris

Leikararnir eignuðust tvíbura árið 2010. Þeir fengu egg frá eggjagjafa og sæði þeirra beggja var notað. 

David Burtka og Neil Patrick Harris.
David Burtka og Neil Patrick Harris. EPA

Jimmy Fallon og Nancy Juvonen

Spjallþáttastjórinn og framleiðandinn eignuðust tvær dætur með hjálp staðgöngumóður eftir að hafa átt erfitt með að geta barn.

Jimmy Fallon og eiginkona hans, Nancy Juvonen.
Jimmy Fallon og eiginkona hans, Nancy Juvonen. AFP

Dennis Quaid og Kimberly Buffington

Leikarinn Quaid og Buffington eignuðust tvíbura árið 2007. 

Dennis Quaid og Kimberly Buffington.
Dennis Quaid og Kimberly Buffington.

Kelsey Grammer og Camillie Donatacci

Leikarinn eignaðist tvö börn með hjálp staðgöngumóður með fyrrverandi eiginkonu sinni Camillie Donatacci. 

Kelsey Grammer.
Kelsey Grammer. Getty Images

Michael Jackson

Söngvarinn eignaðist soninn Blanket árið 2002 með hjálp staðgöngumóður. 

Michael Jackson.
Michael Jackson. Joel Ryan

Tyra Banks

Fyrirsætan eignaðist son árið 2016 með hjálp staðgöngumóður eftir að hafa átt í erfiðleikum með að eignast barn sjálf. 

Tyra Banks.
Tyra Banks. AFP

Elton John og David Furnish

Tónlistarmaðurinn og eiginmaður hans eignuðust tvö börn með hjálp sömu staðgöngumóðurinnar. 

David Furnish og Elton John.
David Furnish og Elton John. AFP

Elizabeth Banks og Max Handelman 

Leikkonan og eiginmaður hennar eignuðust tvö börn með hjálp staðgöngumóður. 

Elizabeth Banks.
Elizabeth Banks. AFP

Ellen Pompeo og Chris Ivery 

Gray's Anatomy-leikkonan og eiginmaður hennar eiga saman tvö börn. Miðjubarnið kom í heiminn með hjálp staðgöngumóður. 

Ellen Pompeo.
Ellen Pompeo. AFP

Lucy Liu

Leikkonan eignaðist barn með hjálp staðgöngumóður árið 2015 þar sem hún hafði sjálf ekki tíma til þess að taka sér frí frá vinnu. 

Lucy Liu.
Lucy Liu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant