Katy Perry um fegrunaraðgerðir

Katy Perry er með sitt raunverulega nef og varir.
Katy Perry er með sitt raunverulega nef og varir. AFP

Söngkonan Katy Perry segist ekki hafa farið í lýtaaðgerðir þrátt fyrir að margir haldi það. Í viðtali við Refinery29 fer hún yfir hvað hún hefur gert og hvað ekki. 

Þrátt fyrir að hafa ekki farið undir hnífinn er Perry ekki alsaklaus af því að hafa látið eiga við andlitið á sér. Hún segist bæði hafa farið í leysimeðferðir og lætur sprauta sig undir augun. Mælir hún með því fyrir alla sem vilja losna við bauga.

Hún segir allt í andliti sínu annars vera raunverulegt. Hún er hins vegar ekki á móti því að fólk breyti sér þó svo hún hvetji fólk til að vera það sjálft. Ef einhver vill breyta nefinu á sér til þess að líða betur ætti hann að gera það. „Gerðu hvað sem er til þess að láta þér líða betur með sjálfan þig,“ sagði söngkonan. 
Katy Perry.
Katy Perry. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson