Transformers leiðir lista þeirra verstu

Mark Wahlberg fékk tilnefningu fyrir leik sinn í Transformers.
Mark Wahlberg fékk tilnefningu fyrir leik sinn í Transformers. AFP

Tilnefningar til Razzie-verðlaunanna voru tilkynntar í gær, mánudag, en vani er að tilkynna tilnefningarnar degi áður en Óskarstilnefningarnar eru tilkynntar. Verðlaunin eru ekki þau eftirsóttustu þar sem þau eru skammarverðlaun. 

Fimmta Transformers-myndin, Transformers XVII: The Last Knight, þótti ekki sú besta á liðnu ári og fékk flestar tilnefningar eða sjö talsins. Meðal annars fyrir verstu myndina, Mark Wahlberg fékk tilnefningu fyrir leik sinn í myndinni og leikararnir Josh Duhamel og Laura Haddock fengu tilnefningar fyrir versta leik í aukahlutverki. Leikstjórinn Michael Bay fékk jafnframt tilnefningu fyrir verstu leikstjórnina. 

Aðrir þekktir leikarar sem oft eru lofaðir fyrir leik sinn fengu tilnefningu. Johnny Depp, Tom Cruise, Jennifer Lawrence og Emma Watson fengu öll tilnefningu. 

Emma Watson fékk tilnefningu.
Emma Watson fékk tilnefningu. AFP

Variety birtir tilnefningar í öllum flokkum en hér fyrir neðan má sjá nokkra þeirra. 

Versta myndin

Baywatch

The Emoji Movie

Fifty Shades Darker

The Mummy

Transformers XVII: The Last Knight

Versta leikkonan 

Katherine Heigl / Unforgettable

Dakota Johnson / Fifty Shades Darker

Jennifer Lawrence / Mother!

Tyler Perry / BOO! 2: A Medea Halloween

Emma Watson / The Circle

Versti leikarinn

Tom Cruise / The Mummy

Johnny Depp / Pirates of The Caribbean XIII: Dead Men Tell No Tales

Jamie Dornan / Fifty Shades Darker

Zac Efron / Baywatch

Mark Wahlberg / Daddy’s Home 2 & Transformers XVII: The Last Knight

Versti leikari í aukahlutverki

Javier Bardem / Mother! & Pirates of The Caribbean: Dead Men Tell No Tales

Russell Crowe / The Mummy

Josh Duhamel / Transformers XVII: Last Knight

Mel Gibson / Daddy’s Home 2

Anthony Hopkins / Collide & Transformers XVII: Last Knight

Versta leikkona í aukahlutverki

Kim Basinger / Fifty Shades Darker

Sofia Boutella / The Mummy

Laura Haddock / Transformers XVII: Last Knight

Goldie Hawn / Snatched

Susan Sarandon / A Bad Moms Christmas

Jennifer Lawrence fékk tilnefningu fyrir Mother!
Jennifer Lawrence fékk tilnefningu fyrir Mother! AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson