Á Twitter-reikningi stjörnunnar Kim Kardashian má sjá alls konar viðbrögð við nýrri ilmvatnslínu sem væntanleg er frá stjörnunni í byrjun næsta mánaðar. Línan, sem ber nafnið KIMOJI HEARTS, minnir marga á sælgæti, en aðra á örvæntingu. Mikil nekt er í herferðinni.
Þegar Kim Kardashian gaf út fyrstu ilmvatnslínuna sína í haust, tæmdust verslanir á augabragði og seldi stórstjarnan 300.000 ilmvatnsglös á mettíma. Ilmvatnslínan minnti á rómantíska kristalla og orku náttúrunnar og hafði fallegt yfirbragt.
Kim Kardashian situr ekki auðum höndum, því ný ilmvatnslína er væntanleg í byrjun næsta mánaðar. Í þessari línu sem ber nafnið KIMOJI HEARTS kveður við nýja sögu, þar sem stjarnar gerir mikið út á nekt sína. Fyrirhugað er að út komi þrír ilmir og stílar stjarnan á að ilmirnir verði gefnir út í tilefni Valentínusardagsins 14. febrúar.
Þekktir ilmvatnssérfræðingar víða um heiminn gefa ekki mikið fyrir þessa línu, en sem dæmi lýsir hún ilminum sínum KIMOJI HEARTS BAE með opnunartóni í anda bergomot. Hjarta ilmsins segir hún vera kókosvatn og endatónn sandalviður. Í Grasse í Frakklandi er hins vegar talað um grunntóna, miðtóna og efstatón þegar kemur að ilmvötnum.
Sama hvað hver segir á þessi vara eflaust eftir að rjúka út. Hvort heldur sem nektin sé að selja eða ekki. Sjón er sögu ríkari. Sjá heimasíðu ilmvatnsins og twitter.