Ætlaði að ræna Lönu Del Rey

Lana Del Rey.
Lana Del Rey. AFP

Lögreglan í Flórída handtók karlmann sem hótaði því að ræna söngkonunni Lönu Del Ray. Hann var með hníf á sér er hann var handtekinn í Orlando en þar átti söngkonan að koma fram skömmu síðar.

Lögreglan segir manninn heita Michael Hunt og vera 43 ára. Hann á yfir höfði sér ákæru vegna hótananna og fyrir að leggja á ráðin um vopnað mannrán.

Maðurinn var handtekinn á föstudag en sagt var frá málinu í gær. 

Lögreglan segist hafa fengið ábendingu á föstudag um að maðurinn ætlaði að láta verða af því að ræna Del Rey. Hann er enn í varðhaldi.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant