Kylie Jenner eignaðist stúlku

Kylie Jenner er orðin móðir.
Kylie Jenner er orðin móðir. mbl.is/AFP

Kylie Jenner eignaðist „heilbrigða og fallega stúlku“ 1. febrúar. Þessu greinir hún frá á Instagram í dag. 

Í færslunni segir hún óléttuna hafa verið það magnaðasta sem hún hafi nokkru sinni gengið í gegnum. Meðgangan hafi breytt öllu hennar lífi. Segist hún í raun eiga eftir að sakna þess að vera ólétt. 

„Ég er þakklát vinum mínum og sérstaklega fjölskyldu minni fyrir að halda þessu augnabliki utan sviðsljóssins eins og mögulegt er. Fallega og heilbrigða stúlkan mín kom í heiminn 1. febrúar. Og ég gat bara ekki lengur beðið með að deila því með ykkur. Ég hef aldrei fundið svo mikla ást og hamingju. Ég gæti sprungið!“

Jenner er tvítug og er yngsta systir Kardashian-systranna frægu. Hún er fyrirsæta, raunveruleikasjónvarpsstjarna og selur sínar eigin snyrtivörulínu. 

Kærastinn heitir Travis Scott og er þetta fyrsta barn þeirra beggja.

Kim Kardashian eignaðist einnig barn í ár með aðstoð staðgöngumóður. Þá á Khloé Kardashian, elsta systirin, einnig von á barni innan nokkurra vikna.

Jenner birti einnig myndskeið á YouTube í dag sem segir í myndum frá meðgöngunni og fæðingunni. Myndskeiðið má sjá hér að neðan. 


 

♥️

A post shared by Kylie (@kyliejenner) on Feb 4, 2018 at 12:27pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson