Sex verkefni tilnefnd til Eyrarrósarinnar

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda, er eitt þeirra verkefna sem …
Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda, er eitt þeirra verkefna sem tilnefnt er í ár. Hátíðin er eina kvikmyndahátíðin á landinu sem sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildarmyndir Ljósmynd/Aðsend

Sex menningarverkefni voru í dag tilnefnd til Eyrarrósarinnar, en það er viðurkenning sem árlega er veitt framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Þann 1. Mars verður tilkynnt um hvaða verkefni fær Eyrarrósina, en verðlaununum fylgir fylgir tveggja milljón króna verðlaunafé en að auki munu tvö verkefnanna hljóta 500 þúsund króna verðlaun.

Eyrarrósinni er ætlað að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Alls bárust 33 umsóknir um viðurkenninguna í ár hvaðanæva af landinu.

Á Eyrarrósarlistanum í ár eru:

  • Aldrei fór ég suður, Ísafirði
  • Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Norðanáttin (Nothern Wave), Snæfellsbæ 
  • Ferskir vindar – alþjóðleg listahátíð í Garði
  • LungA skólinn, Seyðisfirði
  • Rúllandi snjóbolti, Djúpavogi
  • Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, Patreksfirði

Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík.  Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn þann 1. mars næstkomandi í Neskaupsstað, heimabæ þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs sem er handhafi Eyrarrósarinnar frá síðasta ári. Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar mun afhenda verðlaunin.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant