Celine Dion með undarlega hjátrú

Celine Dion talar enn við látinn eiginmann sinn.
Celine Dion talar enn við látinn eiginmann sinn. mbl.is/AFP

Celine Dion missti eiginmann sinn René Angélil fyrir tveimur árum en hún talar þó enn við hann. „Jafnvel þó svo hann sé farinn tala ég enn við hann,“ sagði söngkonan nýlega í viðtali. 

Dion er með þá sérstöku reglu að taka í bronshönd sem gerð var af hönd Angélil og berja í við með henni áður en hún fer á svið. Angélil var töluvert eldri en söngkonan þegar hann lést í janúar árið 2016 en hann var 73 ára, Dion verður hins vegar fimmtug á árinu. 

„Hann gaf mér allt sitt. Hann veðsetti húsið sitt til þess að borga fyrir fyrstu plötuna mína. Ég held að hann hafi viljað vita áður en hann færi að það væri í lagi með mig. Ég er að reyna að sanna fyrir honum á hverjum degi að það sé í lagi með mig. Börnin okkar eru að þroskast, við erum sterk. Við erum góð,“ sagði Dion.

Celine Dion og René Angélil.
Celine Dion og René Angélil. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson