Ellery Harper, 16 ára sonur leikkonunnar Lauru Dern, fékk boð um að ganga fyrir Calvin Klein á tískuvikunni í New York á dögunum. Faðir hans var hins vegar mótfallinn því að Harper gengi tískupallinn.
Í stað þess sat Herper ásamt móður sinni á fremsta bekk samkvæmt W Magazine. „Ég mætti með Ellery sem hefur mikla ástríðu fyrir Raf og var boðið af Raf, þeir eiga fallegt samband,“ sagði Dern um Harper og Raf Simons hjá Calvin Klein.
Harper sagði þá að hann hafi verið beðinn um að ganga en faðir hans hafði aðra skoðun á málinu. „Hann vildi að hann biði aðeins lengur,“ útskýrði Dern þá.