Reynir að ná tökum á kvíðanum

Kendall Jenner verður oft kvíðin.
Kendall Jenner verður oft kvíðin. AFP

Fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner opnaði sig um þann kvíða sem hún glímir við í nýjasta þætti af Keeping Up with the Kardashian, samkvæmt People. Fyrirsætuferillinn hefur ekki góð áhrif á kvíðann. 

Mamma fyrirsætunnar, Kris Jenner, sagði að Kendall ætti við kvíðavandamál að stríða. „Kendall verður mest kvíðin á tískuvikum eða þegar hún er að ferðast mikið,“ sagði raunveruleikastjörnumamman. 

Kendall Jenner segir að margt sem hafi gerst undafarið hafi áhrif á kvíðann eins og þegar systir hennar, Kim Kardashian, var rænd í París. „Svo var ég rænd og það var setið um mig. Þess vegna langar mig ekki að fara út lengur. Þess vegna tísti ég ekki eða er á Instagram. Það veldur mér kvíða líka,“ sagði fyrirsætan. 

Á tískuvikunni í Mílanó notaði fyrirsætan nokkrar mismunandi aðferðir til þess að takast á við álagið. Tónlistarmeðferð, nálastungur og hugleiðsla var meðal þess sem hún nýtti sér. 

Kendall Jenner.
Kendall Jenner. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant