Kynlífið erfiðara á meðgöngunni

Khloe Kardashian á von á sínu fyrsta barni.
Khloe Kardashian á von á sínu fyrsta barni. mbl.is/AFP

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian er langt gengin með sitt fyrsta barn. Eftir að hafa leynt óléttunni fyrsta hálfa árið frá almenningi er Kardashian nú mjög málglöð hvað varðar óléttuna og allt því sem henni fylgir. Kynlíf á meðgöngu er þar engin undantekning.

„Ég hef alltaf heyrt að konur verði sérstaklega graðar þegar þær eru óléttar en fyrir mig hefur þetta verið áhugavert,“ skrifaði Kardashian á vefsíðu sína samkvæmt People

Hún lýsir því að til að byrja með hafi kynlífið verið eins og vanalega en þegar hún var komin á síðasta þriðjung meðgöngunnar hafi kynlífið breyst enda hafi hún stækkað mikið. „Það varð erfiðara að stunda kynlíf, aðeins óþægilegra og takmarkandi,“ skrifaði raunveruleikastjarnan. 

Kardashian er viss um að hún væri ekki sú eina sem upplifði það á meðgöngu að kynlífið væri ekki eins og áður. „Ég er viss um að það sé líka óþægilegt fyrir karlmenn að stunda kynlíf með óléttri konu. Persónulega þá líður mér óþægilega og verð óörugg,“ skrifaði hún. „Þú getur ekki hreyft þig og líður gagnslausri.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant