Allar persónur búa í húsi lyga

Jack O'Connell og Sienna Miller í hlutverkum sínum sem Brick …
Jack O'Connell og Sienna Miller í hlutverkum sínum sem Brick Pollitt og Maggie í Ketti á heitu blikkþaki eftir Tennessee WIlliams í uppfærslu Young Vic sem sýnd verður í Bíó Paradís um helgina á vegum NTLive. Ljósmynd/Johan Persson fyrir Young Vic

„Ég hef lengi verið heillaður af Tennessee Williams sem leikskáldi, en hann skrifaði af ótrúlegu listfengi um drauma og þrár manneskjunnar. Leikrit hans eru í senn raunsæisleg og goðsagnakennd,“ segir leikstjórinn Benedict Andrews sem á síðasta ári leikstýrði leikritinu Köttur á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams hjá Young Vic í London, en upptaka NTLive af sviðsuppfærslunni verður sýnd í Bíó Paradís á laugardag og sunnudag kl. 20 bæði kvöld og tekur Benedict þátt í umræðum að sýningu lokinni á laugardag. Verkið fjallar um auðjöfurssoninn Brick Pollitt (leikinn af Jack O'Connell) sem lokað hefur sig inni með það að markmiði að drekka sig í hel í kjölfar sjálfsmorðs vinar síns, Skipper. Eiginkona hans, Maggie (sem Sienna Miller leikur), er reiðubúin að berjast fyrir fjölskylduauðnum og hjónabandi þeirra með kjafti og klóm.

Köttur á heitu blikkþaki er annað leikrit Williams sem Benedict leikstýrir hjá Young Vic því árið 2014 leikstýrði hann Sporvagninum girnd þar sem Gillian Anderson fór með hlutverk Blanche DuBois og var sú sýning líka tekin upp á vegum NTLive og sýnd í kvikmyndahúsum víðs vegar um heiminn.

Leikstjórinn Benedict Andrews hefur á síðustu árum í auknum mæli …
Leikstjórinn Benedict Andrews hefur á síðustu árum í auknum mæli snúið sér að kvikmyndum í stað leiksviðsins. Ljósmynd/Saga Sig.

Benedict kom fyrst til Íslands fyrir tæpum áratug, en fluttist búferlum hingað fyrir fimm árum þar sem hann er í sambúð með Margréti Bjarnadóttur, dansara og dansahöfundi. „Vinna mín krefst þess að ég sé talsvert á ferð og flugi,“ segir Benedict sem leikstýrir jöfnum höndum í Bretlandi, Þýskalandi og föðurlandi sínu, Ástralíu. „Mér hefur þótt einstaklega gott að hlaða batteríin hér á Íslandi og vinna megnið af undirbúningvinnu næstu leikhúsuppsetningar eða kvikmyndar hérlendis,“ segir Benedict og tekur fram að hann kunni vel að meta hreina loftið og nálægðina við náttúruna hérlendis þar sem veðráttan og árstíðirnar leika stórt hlutverk.

Gott að vinna með íslenskum leikurum

Benedict hefur leikstýrt tveimur leiksýningum hérlendis, báðum í Þjóðleikhúsinu og báðum úr smiðju Williams Shakespeare, fyrst Lé konungi árið 2010 og síðan Macbeth 2012. „Mig langar til að leikstýra meira hérlendis, enda finnst mér afskaplega gott að vinna með íslenskum leikurum. Ég hef átt samtöl við bæði Ara [Matthíasson þjóðleikhússtjóra] og Kristínu [Eysteinsdóttur borgarleikhússtjóra] um möguleg leikstjórnarverkefni og vonandi kemur eitthvað út úr því þegar um hægist aðeins hjá mér á erlendum vettvangi,“ segir Benedict og tekur fram að sem standi eigi kvikmyndir hug hans allan.

Seint á síðasta ári frumsýndi hann fyrstu kvikmynd sína í fullri lengd sem nefnist Una og byggist á leikritinu Blackbird eða Svartur fugl eftir skoska leikskáldið David Harrower sem Benedict leikstýrði hjá Schaubühne í Berlín 2005. Verkið fjallar um unga konu sem leitar uppi manninn sem beitti hana kynferðislegu ofbeldi 15 árum áður þegar hún var aðeins 12 ára og hann fertugur. Með aðalhlutverkin fara Rooney Mara og Ben Mendelsohn.

„Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum í miðri #metoo-byltingu í kjölfarið á uppljóstrunum um framkomu Harveys Weinstein. Það er því óhætt að segja að myndin hafi talað beint inn í samtímann,“ segir Benedict og tekur fram að vandasamt sé hins vegar að markaðssetja listaverk með jafn eldfimu viðfangsefni. „Ég er mjög stoltur af þessari mynd. Mörgum finnst erfitt að horfa á hana og þannig á það að vera, enda viðfangsefnið erfitt.“ Myndin var sýnd á síðustu Stockfish-kvikmyndahátíð hérlendis og er aðgengileg á efnisveitum á netinu.

Aðspurður segist Benedict þegar byrjaður að vinna að næstu mynd, sem er sannsöguleg og gengur undir vinnutitlinum Seberg. „Sú mynd fjallar um ungan og metnaðarfullan starfsmann FBI sem falið er að rannsaka leikkonuna Jean Seberg vegna tengsla hennar við baráttuhópinn Black Panther í Los Angeles á sjöunda áratug síðustu aldar,“ segir Benedict og tekur fram að hann megi enn sem komið er lítið meira segja um innihald myndarinnar eða leikaravalið, en stefnt er að því að tökur hefjist með vorinu og frumsýning er áætluð á næsta ári.

Bestu leikritin skrifuð á umbrotatímum

En aftur að Ketti á heitu blikkþaki sem sýnt verður um helgina. Hvers vegna langaði þig að setja þetta verk á svið í fyrra?

„Í ljósi þess að ég hef fækkað leikhúsverkefnum mínum á síðustu árum til að einbeita mér að kvikmyndum vel ég leikritin sem ég set upp mjög gaumgæfilega. Mér fannst samtali mínu við Williams ekki lokið eftir Sporvagninn,“ segir Benedict og bendir á að bestu leikrit sögunnar hafi iðulega verið skrifuð á miklum umbrotatímum og nefnir hann í því samhengi leikrit bæði Williams og Shakespeare.

Jack O'Connell og Lisa Palfrey í hlutverkum mæðgina í Ketti …
Jack O'Connell og Lisa Palfrey í hlutverkum mæðgina í Ketti á heitu blikkþaki. Sonurinn hefur einsett sér að drekka sig í hel eftir sjálfsvíg vinar síns. Ljósmynd/Johan Persson fyrir Young Vic

„Eftir að ég byrjaði að vinna með Köttinn sá ég sífellt betur hversu sterkt leikritið talar til samtímans. Við lifum núna tíma þar sem forseti Bandaríkjanna er lygari og tilheyrir auðugri fjölskyldu sem tekið hefur yfir stjórnmálin. Bandaríkjunum er í augnablikinu stjórnað eins og stórfyrirtæki. Í Kettinum er Williams að rannsaka auðuga fjölskyldu þar sem fjölskyldufaðirinn, í anda Lés konungs, stendur frammi fyrir erfiðri spurningu um erfðamálin. Allar persónur verksins búa í húsi lyga og neyðast að lokum til að horfast í augu við afleiðingar sannleikans,“ segir Benedict og tekur fram að Tennessee Williams sé aldrei umvöndunarsamur í skrifum sínum.

Af ljósmyndum úr uppfærslunni að dæma fórstu þá leið að hafa sviðið mjög bert og sjá má umgjörð svefnherbergis Bricks sem gyllt búr. Viltu segja mér aðeins frá sjónrænni nálgun þinni?

„Gyllt búr er góð samlíking. Í leikhúsinu heillast ég fremur af hinu tóma rými í stað mikilla skreytinga. Við Magda Willi, leikmyndahönnuður, vildum fanga þá grunnstemningu verksins að svefnherbergið, sem ætti að vera griðastaður, verður fyrir sífelldum innrásum,“ segir Benedict og tekur fram að hann hafi ekki viljað binda verkið of mikið við ritunartíma þess til þess að það virkaði ekki eins og safngripur, heldur fremur sprengja rammann og tengja við samtímann.

Tekst á við kjarnann

Benedict lýkur lofsorði á leikhópinn. „Jack O'Connell vakti fyrst athygli mína fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni Starred Up. Mig hefur lengi langað til að vinna með honum, en hann hefur lítið leikið á sviði. Hann hefur útlitið með sér, en býr samtímis yfir ofsafengnum og óhefluðum krafti. Brick er passívur í verkinu, en á sama tíma megindrifkraftur þess. Jack tókst afspyrnuvel að miðla eyðingarmættinum sem Brick býr yfir. Ég valdi Siennu Miller í hlutverk Maggie vegna þess að mér finnst hún vaxandi leikkona. Maggie er sér mjög meðvituð um hvernig nýta má kynþokkann sem vopn á sama tíma og hana þyrstir bókstaflega í Brick, en löngun hennar má líkja við fíkn,“ segir Benedict og tekur fram að hann hafi verið afar sáttur við uppfærsluna, sem fékk góðar viðtökur gagnrýnenda. Sem dæmi gáfu gagnrýnendur The Telegraph og Independent uppfærslunni fjórar stjörnur af fimm mögulegum.

„Hann [Benedict Andrews] er leikstjóri sem losar sig við allan óþarfa og tekst á við kjarnann,“ skrifar Paul Taylor, gagnrýnandi Independent, um sýninguna, og segir svo: „Sienna Miller angar af glamúr, aðdráttarafli og kynferðislegri ófullnægju í hlutverkinu sem Maggie, en túlkun hennar fangar einnig vel að hér er á ferðinni kona sem fæddist í fátækt, ólst upp í fátækt og sér fram á að deyja í fátækt nema henni takist að nýta meðfætt sjálfsöryggi sitt til að eignast barn með manni sem vill ekki snerta hana“.

Michael Billington, gagnrýnandi The Guardian, bendir á að báðar uppfærslur Benedicts Andrews á verkum Williams hjá Young Vic leiði í ljós að Benedict sé „fullur af orku og sumar hugmyndir hans eru líkt og hugljómun“. Bendir hann á að sturtan á miðju sviði sé fyrst og fremst notuð af O'Connell í hlutverki Bricks, sem reyni ítrekað að þvo af sér sektarkennd sína. Segir hann styrk sýningarinnar liggja í því að leikstjóranum takist að „tengja tilfinningahita við súran húmor“. Segir hann túlkun Miller á Maggie trúverðuga og líkamsbeitingu hennar góða. O'Connell segir hann búa yfir „þráhyggju drykkjumannsins, sem hugsi stöðugt um viskíflöskurnar fjórar sem staðsettar eru framsviðs,“ skrifar Billington og tekur fram að O'Connell takist vel að túlka örvæntingu Bricks yfir örlögum vinar síns, Skippers, sem framdi sjálfsmorð þegar Brick hafnaði ástleitni hans.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant