Ocean's Eleven án Pitt og Clooney

Fjórir félagar ákveða að ræna banka til að greiða upp …
Fjórir félagar ákveða að ræna banka til að greiða upp skuld við hættulegasta mann Íslands í kvikmyndinni Fullir vasar.

Þriðja kvikmynd leikstjórans Antons Sigurðssonar, Fullir vasar, verður frumsýnd í dag en fyrri myndir hans eru Grafir og bein frá árinu 2014 og Grimmd frá árinu 2016. Í Fullum vösum segir af fjórum körlum sem ræna banka til þess að greiða upp tugmilljóna skuld við einn hættulegasta mann Íslands og er myndinni lýst sem gamanmynd með spennuívafi. Atburðarásin er eftir því og fer margt á annan veg en til stóð hjá bankaræningjunum. Í aðalhlutverkum eru Egill Ploder Ottósson og Nökkvi Fjalar Orrason sem þekktir eru sem liðsmenn Áttunnar, Hjálmar Örn Jóhannesson, Aron Már Ólafsson, Laddi, Hilmir Snær Guðnason, Salka Sól Eyfeld og Júlíana Sara Gunnarsdóttir.

Anton Sigurðsson.
Anton Sigurðsson.

Aron skrifaði handrit Fullra vasa, líkt og fyrri kvikmynda sinna og þegar hann er spurður að því hvers vegna hann hafi ákveðið að gera svona kvikmynd, þ.e. gaman- og glæpamynd með spennuívafi, segir hann að sér hafi þótt vanta slíka íslenska mynd. „Íslenska grínmynd sem fólk fer á í bíó, hlær og er í góðu skapi þegar það fer út,“ útskýrir hann. Íslenskar kvikmyndir verði sífellt betri en þó vanti fleiri gamanmyndir. Anton segist líka hafa viljað taka u-beygju frá því sem hann hefur áður gert og að hann hafi langað að vinna með Ladda, Hjálmari, Agli, Nökkva og Aroni.

Ólærðir en með mikla reynslu

–Þú ert bæði með lærða og ólærða leikara í myndinni. Eru þeir ólærðu í meirihluta?

„Aron er lærður eða er að klára nám við leiklistarbraut LHÍ, það eru náttúrlega þrír ólærðir leikarar þarna en það sögðu allir leikarar já [við því að leika í kvikmyndinni, innsk.blm.]; Hilmir Snær, Ólafía Hrönn, Helga Braga, Júlíana, þetta eru allt lærðir leikarar en af þessum fjórum aðalhlutverkum er Aron í raun sá eini með einhvern bakgrunn í leiklist,“ svarar Anton. Hinir ólærðu búi samt sem áður yfir mikilli reynslu af því að skapa fyrir framan myndavél. „Þeir eru allan daginn að skapa eitthvað og búa til og þá sérstaklega Hjálmar,“ segir Anton og vísar þar til vinsælda Hjálmars á Snapchat (viðtal við Hjálmar verður í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kemur út á morgun).

–Af söguþræði myndarinnar að dæma og stiklu virðist þetta vera algjör strákamynd, fáar konur kynntar til leiks.

„Já, en það er náttúrlega fullt af konum og til dæmis er ný leikkona, Arndís Arnarsdóttir, sem leikur dóttur Hjálmars. Hún er 12 eða 13 ára og bara frábær og svo er Júlíana Sara úr gamanþáttunum Þær tvær þarna líka, hún leikur fyrrverandi eiginkonu Hjálmars. Salka Sól leikur vinnufélaga Egils og Nökkva og Ólafía Hrönn og Helga Braga eru þarna líka þannig að það eru margar konur. En það eru þessi fjórir gæjar sem ákveða að fara í þennan leiðangur.“

Nær ekki prófinu

Aron er í framhaldi spurður að því hvort kvikmyndin standist Bechdel-prófið og hann hugsar sig stuttlega um og svarar svo: „Örugglega ekki en hinar myndirnar mínar tvær gerðu það, í þeim báðum voru konur í aðalhlutverkum.“

Fyrir þá sem ekki vita þá segir Bechdel-prófið til um birtingarmynd kvenna í kvikmyndum og til að standast það þarf kvikmynd að uppfylla þrjú skilyrði: í henni þurfa að vera a.m.k. tvær nafngreindar konur, þær þurfa að tala saman og um eitthvað annað en karlmenn.

Anton segir að hins vegar megi finna fleiri konur á lista yfir þá sem komu að gerð myndarinnar en karla og hann segist ekki hafa áhyggjur af hlut kvenna í Fullum vösum eftir að hafa gert tvær myndir með konum í aðalhlutverkum, sem fyrr segir. „En það koma töluvert fleiri konur við sögu en margir halda,“ bætir hann við.

Scott veitti byr í seglin

–Leitaðir þú fyrirmynda í kvikmyndum af þessu tagi, t.d. Snatch, áður en þú hófst handa?

„Já, klárlega, í þessar bresku Guy Ritchie-myndir og ég hef alltaf lýst henni sem Ocean's Eleven en það er enginn Brad Pitt eða George Clooney,“ svarar Anton kíminn.

–Hilmir Snær kemst kannski næst þeim?

„Já, hann leikur son Ladda. Þeir leika feðga og glæpakónga sem reka bílasölu og eru með kúrekahatta og bjóða upp á 110% bílalán,“ segir Anton sposkur og bætir við að nokkrar persónur myndarinnar séu byggðar á raunverulegum Íslendingum.

–Hvað þótti þér erfiðast og hvað skemmtilegast við gerð Fullra vasa?

„Skemmtilegast var að mæta í vinnuna og geta hlegið, eftir að hafa gert tvær þungar myndir og líka hvað allir voru til í að vera með. Það var auðvelt að koma þessu af stað,“ svarar Anton. „Það sem var erfiðast var að myndin var skotin á mjög fáum dögum og við kláruðum tökur í nóvember en í janúar þurftum við að fara í aukatökur og myndin var forsýnd 15. febrúar. Það hélt enginn að þetta væri hægt en það sem gaf mér styrk var að á sama tíma og þetta var að gerast var Ridley Scott að endurtaka allar senurnar með Kevin Spacey, þremur vikum fyrir frumsýningu. Scott er áttræður þannig að ég hugsaði með mér að ég hefði enga afsökun.“

Hér má sjá stiklu Fullra vasa:

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson