Meghan og Katrín ræddu málin

Meghan Markle og Katrín hertogaynja.
Meghan Markle og Katrín hertogaynja. AFP

Meghan Markle, unnusta Harry Bretaprins, kom í fyrsta sinn fram opinberlega með bræðrunum tveimur og Katrínu hertogaynju í dag, miðvikudag, þegar hún tók þátt í umræðum á vegum Royal Foundation. 

Harry, Vilhjálmur og Katrín eru verndarar stofnunarinnar og það verður Meghan væntanlega líka þegar hún gengur formlega í bresku konungsfjölskylduna. Stofnunin vinnur að góðgerðarmálum en Meghan hefur nú þegar beitt sér mikið fyrir góðgerðarmálum í þágu kvenna. 

Meghan og Katrín sátu hlið við hlið og virtust ná vel saman. Fjórmenningarnir hafa áður sést saman en það var þegar þau sóttu kirkju í Sandringham á jóladag. 

Bræðurnir Harry og Vilhjálmur og Meghan og Katrín.
Bræðurnir Harry og Vilhjálmur og Meghan og Katrín. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson