Allt á niðurleið aftur hjá Tori Spelling

Tori Spelling á erfitt í einaklífinu.
Tori Spelling á erfitt í einaklífinu. mbl.is/Cover Media

Beverly Hills 90210-stjarnan Tori Spelling á ekki sjö dagana sæla. Eiginmaður hennar, Dean McDermott, hringdi á neyðarlínuna í gærmorgun og tilkynnti að Spelling væri að fá einskonar taugaáfall. 

TMZ greinir einnig frá því að Spelling hafi hringt á lögreglu á miðvikudaginn þar sem hana grunaði að það væri verið að brjótast inn til hennar. Það kom þó í ljós að innbrotsþjófurinn var einungis eiginmaður hennar. 

Spelling eignaðist sitt fimmta barn í fyrra auk þess sem hún hefur átt í peningavandræðum. Heimildamaður People segir að síðasta ár hafi verið erfitt fyrir Spelling. Börnin, vinnan og hjónabandið spili þar inn í. Spelling sé með mikinn kvíða og því sé ekki skrítið að hún brotni niður. 

Hjónaband Spelling og McDermott var í molum fyrir fjórum árum þegar upp komst um framhjáhald McDermott. McDermott sem fór í meðferð í kjölfarið vegna kynlífsfíknar og hjónin unnu í sínum málum. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant