Hefur engan áhuga á dóttur sinni

Eddie Murphy á dóttur með Mel B.
Eddie Murphy á dóttur með Mel B. skjáskot/Instagram

Kryddpían Mel B og framleiðandinn Stephan Belafonte standa nú í skilnaði. Vill Belafonte fá rétt til þess að hitta stjúpdóttur sína sem Mel B átti með Eddie Murphy. Lögmaður Belafonte segir að grínistinn sýni dóttur sinni, hinni tíu ára gömlu Angel Iris Murphy Brown, engan áhuga. 

Skilnaðurinn er búinn að vera heiftarlegur og er kryddpían ekki á því að leyfa Belafonte hitta dóttur sína sem Belafonte segir að hafa kallað sig pabba síðan hún byrjaði að tala. 

Fram kemur í Daily Mai að lögmaður Belafonte hafi reynt að ná í Murphy til þess að ræða um rétt stjúplöðursins til þess að hitta dóttur hans. Að sögn lögmannsins fékk hann þau skilaboð frá lögmönnum Murphy að hann hafði engan áhuga á dóttur sinni. „Herra Murphy hefur ekki haft nein samskipti við barnið,“ sagði lögmaðurinn í dómssal. 

Stephan Belafonte og Mel B standa í skilnaði.
Stephan Belafonte og Mel B standa í skilnaði. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant