Það seldist upp á tónleika Bjarkar þann 12. apríl á örfáum mínútum í dag. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að halda aukatónleika mánudaginn 9. apríl en báðir tónleikarnir fara fram í Háskólabíói.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna tónleika Bjarkar.
Tónleikarnir eru liður í útgáfu Útópíu sem er 10. sólóplata Bjarkar og kom út í lok síðasta árs, en Björk er án efa þekktasti listamaður Íslands fyrr og síðar. Plötur hennar hafa selst í milljónum eintaka út um allan heim og fyrir þá síðustu Vulnicura vann hún m.a. Brit verðlaunin sem besta alþjóðlega söngkonan.
Miðasala á aukatónleikana hefst á mánudag á tix.is en ekki verða fleiri tónleikar hjá Björk á Íslandi að þessu sinni.