Clinton datt í baði og meiddi sig á hendi

Hillary Clinton meiddi sig á hendi.
Hillary Clinton meiddi sig á hendi. AFP

Hillary Clinton lenti í því óhappi að hrasa í baði með þeim afleiðingum að hún meiddi sig á hendi. Clinton er stödd í Indlandi og var því flutt á spítala þar í landi. 

Baðfallið er ekki eina fall Clinton í ferðinni ef marka má frétt DNA en þar kemur fram að á mánudaginn hafi Clinton dottið í tröppum fyrir framan mosku. 

Clinton er ekki fyrsta manneskjan til þess að meiða sig í baði en frægt er þegar sjálfur forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, brákaði nef sitt þegar hann fór í of heitt bað. 

Clinton falið aðra höndina undir sjali í gær.
Clinton falið aðra höndina undir sjali í gær. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant