Joey Christ blæs til rappveislu

Jóhann Kristófer Stefánsson, sem gengur undir listamannsnafninu Joey Christ, á …
Jóhann Kristófer Stefánsson, sem gengur undir listamannsnafninu Joey Christ, á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrradag. Vinstra megin má sjá rapparann Birni og hægra megin rapparann Aron Can. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rapparinn Joey Christ heldur heljarinnar rappveislu, The Joey Christ Show, með vinum sínum og samstarfsmönnum á tónlistarhátíðinni Sónar Reykjavík í Hörpu á miðnætti í kvöld. Joey hefur ástæðu til að fagna því í fyrrakvöld hlaut hann tvenn verðlaun þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent, fyrir bestu plötuna í flokki rapps og hip hops, Joey, og besta rapplagið, „Joey Cypher“.

Joey, eða Jóhann Kristófer Stefánsson eins og hann heitir réttu nafni, er spurður að því hvernig tilfinning það hafi verið að hljóta verðlaunin og segist hann hafa orðið nokkuð hissa. Flokkarnir hafi verið afar sterkir, vandaðar plötur og lög í flokki tilnefndra og því þeim mun ánægjulegra að hljóta verðlaunin. „Fínt að fá staðfestingu á því að maður sé að vinna gott menningarstarf,“ segir Jóhann.

Á vef Sónar Reykjavík segir að Jóhanni hafi verið hrósað fyrir hversu auðvelt hann eigi með að leiða saman tónlistarfólk og til samstarfs við sig og þegar blaðamaður nefnir þetta segir Jóhann að á plötunni Joey sé aðeins eitt lag að finna sem hann rappi einn í. „Þetta er algjör „collaborative“ plata,“ segir hann og að gaman sé að leiða saman ólíka tónlistarmenn.

Rappið tók við af poppi

Jóhann er 25 ára með stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og BA-gráðu frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands. Áhuga sinn á sviðslistum á hann ekki langt að sækja því foreldrar hans eru menntaðir leikarar, Ásta Hlín Svavarsdóttir og Stefán Jónsson.

„Það er sterkt „showbiz“ í blóðinu hjá mér og þegar ég var hálfnaður með námið í Listaháskólanum fór ég af stað með Sturla Atlas verkefnið með Sturlu, besta vini mínum og Loga Pedro Stefánssyni. Þá fór ég að koma fyrst fram og gera einhverja músík og svo var það ekki fyrr en nokkrum árum síðar að ég fór að gera tónlist á íslensku. Þá kvað við annan tón, Sturla Atlas er meira popp en rappið er aðeins auðveldari leið fyrir mig að vinna úr,“ segir Jóhann.

Margt til lista lagt

Jóhann er spurður að því hvenær hann hafi byrjað að hlusta á rapp og segist hann þá hafa verið í Austurbæjarskóla. „Mér datt aldrei í hug að verða rappari þegar ég byrjaði að hlusta á J Dilla og fleiri hjá Stones Throw-útgáfunni í Bandaríkjunum sem var aðeins meira „underground“ rapp. Svo tók ég miklu ástfóstri við Kanye West, ég var ofuraðdáandi hans og það sem ég aðhyllist hjá honum er ekki bara tónlistin heldur líka heimspekin,“ segir Jóhann. West leggi mikið upp úr því að fólk sé ekki hólfað niður, sett í ákveðna kassa.

Jóhann segist líka hafa leikið í sjónvarpsþáttunum Föngum og Stellu Blómkvist og leikstýrt tónlistarmyndböndum og þá m.a. fyrir Sturlu Atlas og rapparann Birni. Og hann hefur líka leikstýrt uppfærslum fyrir Herranótt, leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, ásamt fyrrnefndum vini sínum Sturlu Atlasyni, nú síðast Gísla sögu Súrssonar.

Flytur ný lög

Vinir og samstarfsmenn Jóhanns koma fram með honum á Sónar Reykjavík í kvöld, þeir Birnir, Lexi Picasso og Krabba Mane en þegar blaðamenn ræddi við Jóhann í gærmorgun var listinn ekki fullmótaður og því eflaust fleiri sem troða munu upp.

Jóhann, eða öllu heldur Joey Christ, mun flytja nýtt efni í bland við eldra. „Ég hef verið að vinna nýja músík með Marteini vini mínum sem kallar sig líka Bngrboy. Við erum að verða tilbúnir með eitt „project“ og ég ætla að taka nokkur lög af því,“ segir Jóhann. Og það verður ekki bara rappað heldur verður líka boðið upp á glæsilega ljósasýningu. „Við ætlum að vera á sama plani og hinir listamennirnir sem eru að spila,“ segir Jóhann.

En um hvað er Joey Christ að rappa?

„Stundum er þetta smá mont-rapp, ég að tala um hvað ég er flottur en allir hinir hallærislegir,“ segir Jóhann sposkur og bætir við að hann reyni að hafa góða blöndu af gríni og alvöru, reyni að koma líka heiðarlega fram og fjalla um tilfinningar sínar. „Það er gullinn meðalvegur í þessu, að finna hvað maður á að tala um. Líf mitt er búið að vera frekar stabílt síðustu mánuði og þá finn ég að þegar ég fer í stúdíó veit ég ekki alveg hvað ég á að tala um. Maður þarf oft að koma sér í gír og reyna að finna eitthvert stef eða þema sem mann langar að vinna út frá.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant