Menntaskólinn í Kópavogi frumsýndi söngleikinn Hairspray í gær. Monika Melkorka Arnarsdóttir, í stjórn leikfélags MK, og Kristinn Örn Sigurðsson, leikari í sýningunni, segja að það megi læra margt á söguþræði verksins. Þau segja fordómana skína í gegn.
„Samfélagið er að opnast og baráttan fyrir breyttri heimsmynd blandast við stormasamt ástarlíf unglinganna í Baltimore og tilraunir þeirra til að fá foreldrana og heiminn til að skilja að allir eiga rétt á sömu tækifærum og ástin getur sigrað allt,“ segir í kynningartexta sýningarinnar.
Söngleikurinn er byggður á mynd John Waters og má segja að hún hafi slegið rækilega í gegn árið 2007 er John Travolta, Michelle Pfeiffer, Christopher Walken og Zac Efron fóru með aðalhlutverk í endurgerðri á samnefndum söngleik frá árinu 1988.
Hér má lesa um sýningu MK og að neðan má nálgast viðtalið við Moniku Melkorku og Kristinn Örn.