Leikarinn Hugh Jackman fór kannski tómhentur heim af Golden Globe-verðlaunahátíðinni í janúar en það gerði hann ekki þegar hann var verðlaunaður fyrir besta leik í aðalhlutverki á Empire-verðlaunahátíðinni. Þegar hann tók við verðlaununum þakkaði hann eiginkonu sinni fyrir sitt framlag.
Jackman notaði tækni 21. aldarinnar þegar hann tók á móti verðlaununum en samkvæmt Daily Mail var hann með eiginkonu sína, Doborru-lee Furness, á FaceTime í síma uppi á sviði og sýndi henni verðlaunin.
Hjónaband Jakcman og Furness hefur enst nokkuð lengi miðað við mörg sambönd fólks í sviðsljósinu en þau giftu sig árið 1996. Þau virðast enn vera að springa úr hamingju miðað við ræðuna en Jackman er 13 árum yngri en Furness sem er 62 ára.