Leikkonan Vivica A. Fox er að gefa út sjálfshjálparbókina Every Day, I'm Hustling þar sem hún segir meðal annars sögur af sjálfri sér. Hún ætlaði ekki að fara út í samband sitt og rapparans 50 Cent en endaði þó á því að gera það. Hún segir rapparann búið til sögur um sig.
Fox og 50 Cent hættu saman fyrir meira en áratug en New York Daily News greinir frá því hvernig hún talar um kynlíf þeirra í bókinni. Fox segir að rapparinn hafi haft meiri áhuga á ferli sínum en kynlífinu. Hún hafi oftast átt fyrsta skrefið þegar kom að kynlífi í sambandinu vegna þess að hún naut þess að stunda kynlíf með honum. Hún lýsir kynlífinu sem bannað börnum.
Einnig segist hún hafa komist að því að rapparinn hafi ætlað að biðja sín í Mónakó þar sem þau tóku þátt í World Music Awards. Hann hafi leigt kvikmyndahús þar sem hann ætlaði að sýna Kill Bill Vol. 1 en Fox lék einmitt í myndinni. Í lok myndarinnar ætlaði hann að biðja hennar með 14 karata demantshring. Hann hætti hins vegar við eftir að Fox hafi fundist Fox hafa stolið athyglinni sem kynnir á hátíðinni.
Rapparinn er ekki eins ánægður með bókina og fyrrverandi kærasta hans. Hann birti mynd af greininni á Instagram. Hann furðaði á sig hver gerir svona lagað og segir vera komin 14 ár síðan.
👀I’m waking up to this shit, that was14 years ago. 🤦♂️smh who does this? What the fuck!🤨
A post shared by 50 Cent (@50cent) on Mar 19, 2018 at 6:40am PDT