Britney óþekkjanleg í herferð Kenzo

Britney Spears þykir ansi ólík sér í nýjustu herferð Kenzo.
Britney Spears þykir ansi ólík sér í nýjustu herferð Kenzo. Skjáskot/Instagram

Aðdáendur Britney Spears þekktu vart poppstjörnuna þegar hún var kynnt sem nýjasta fyrirsætan í herferð franska tískuhússins Kenzo á dögunum.

Á Twitter hefur fólk verið óhrætt við að gagnrýna myndvinnslu herferðarinnar og segja margir að þeir héldu fyrst að konan á myndunum væri söngkonan Jessica Simpson eða hreinlega Heidi Klum. Enn fleiri spurðu sig að því hvort það hefði ekki verið ódýrara fyrir Kenzo að teikna myndirnar í stað þess að breyta Britney svo mikið í myndvinnsluforritinu Photoshop.

Myndirnar voru teknar í Los Angeles af hinum virta ljósmyndara Peter Lindbergh og í samtali við Vogue  sagði Britney að þó hún hafi skemmt sér vel í myndatökunni hafi það verið á sama tíma sérstök upplifun því almennt sé hún vön að taka myndir í litlum rýmum eða stúdíóum en þarna hafi hún verið stödd úti á götu og fáklædd en myndirnar hafi komið mjög vel út.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr herferðinni.

Britney virðist vera í hörkuformi á þessum myndum en hún …
Britney virðist vera í hörkuformi á þessum myndum en hún er 36 ára og tveggja barna móðir. Skjáskot/Instagram
Britney Spears.
Britney Spears. Skjáskot/Instagram
Britney Spears.
Britney Spears. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson